Eyjamaðurinn Daníel Örn Griffin er að ganga til liðs við nýliða Víkings í Olísdeild karla, aðeins þremur vikum áður en flautað verður til leiks í Olísdeild karla. Frá þessu segir Arnar Daði Arnarsson fyrrverandi þjálfari Gróttu og nú ritstjóri og prímusmótor hlaðvarpsþáttarins Handkastið samkvæmt heimildum á samskiptaforritnu X, áður Twitter, í kvöld
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Sérfræðingsins hefur Daníel Örn Griffin verður seldur frá Gróttu til nýliða Víkings. Gríðarlega óvænt tíðindi ekki nema þremur vikum fyrir Olís. Daníel Örn olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili og eftir sumarfrí vildu Grótta losa sig við hann. pic.twitter.com/Whpf7SNrT5
— Arnar Daði (@arnardadi) August 16, 2023
Daníel Örn, sem er alinn upp í ÍBV og var í þreföldu meistaraliði félagsins vorið 2018, hefur undanfarin þrjú ár verið í herbúðum Gróttu. Þar áður var hann í herbúðum KA í eitt ár.
Daníel Örn skoraði 36 mörk í 18 leikjum með Gróttu í Olísdeildinni á síðustu leiktíð.
Daníel Örn var ekki með Gróttu gegn Aftureldingu á UMSK-mótinu í gærkvöld og gaf það vangaveltum um að hann væri á förum frá félaginu, byr undir vængi.
Víkingar hafa verið að safna að sér liðsstyrk fyrir leiktíðina. Þeir unnu Hauka, 31:30, í æfingaleik í Safamýri í gærkvöld.