Handknattleikslið Harðar hefur dregið sig úr keppni á Hafnarfjarðarmótinu í handknattleik karla sem hefst á þriðjudaginn. Eins og handbolti.is sagði frá á dögunum hefur Harðarliðið vart hafið æfingar ennþá vegna skorts á aðstöðu. Viðgerðir og viðhald íþróttahúsanna á Ísafirði og í Bolungarvík munu hafa sett strik í reikning Harðarliðsins og hins nýja þjálfara, Ungverjans Endre Koi.
Eftir að Harðverjar heltust úr lestinni standa þrjú lið eftir á Hafnarfjarðarmótinu, þ.e. FH og Haukar og Íslandsmeistarar ÍBV.
Mótshaldar ætla ekki að láta hug falla þótt Ísfirðingar hafa hrokkið úr skaftinu.
Flautað verður til leiks á þriðjudaginn klukkan 17.30 í Kaplakrika með viðureign Hauka og ÍBV. Tveimur dögum síðar leiða FH og ÍBV saman hesta sína í Kaplakrika klukkan 17.30. Laugardaginn 26. ágúst klukkan 12 er ráðgert að Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar mætist í Kaplakrika.