Hið árlega Hafnarfjarðarmót í handknattleik karla hefst í síðdegis í Kaplakrika í Hafnarfirði. Aðeins þrjú lið taka þátt í mótinu í ár en til stóð að fjögur lið reyndu með sér. Eitt þeirra, Hörður á Ísafirði, heltist úr lestinni á dögunum. Eftir standa þar með Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar auk Íslandsmeistara ÍBV.
Þrír leikir fara fram og til stendur að þeir fari fram í Kaplakrika. Einn í dag, annar á fimmtudaginn og sá þriðji á laugardaginn.
Íslandsmeistarar ríða á vaðið í kvöld þegar þeir sækja Hauka heim í heitavatnslausan Hafnarfjörð klukkan 17.30.
Á fimmtudaginn eigast við FH og ÍBV áður en FH og Haukar mætast á laugardaginn.
Opið hús verður í Kaplakrika og allir velkomnir að mæta á leikina.
Tengdar fréttir:
Leikjadagskrá Hafnarfjarðarmótsins.