Rétt rúmir tveir mánuðir eru þangað til íslenska landsliðið í handknattleik hefur leik á heimsmeistaramóti kvenna sem haldið verður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð frá 29. nóvember til 17. desember. Íslenska landsliðið verður í riðli með landsliðum Angóla, Frakklands og Slóveníu. Leikirnir fara fram í Stavangri 30. nóvember, 2. og 4. desember.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið stendur einhverstaðar. Nú er svo sannarlega heillaráð að huga að ferð til Stavangurs í upphafi aðventu og styðja við bakið á íslenska landsliðinu, sjá um leið handbolta í heimsklassa.
Stuðningurinn við karlalandsliðið á undanförnum stórmótum hefur verið frábær. Nú er komið að því að flykkja sér á bak við kvennalandsliðið sem er að ryðja sér braut á meðal bestu landsliða heims.
Hlekk á miðasöluna má finna hér fyrir neðan, smellið á viðkomandi leik.
Ísland – Slóvenía.
Ísland – Frakkland.
Ísland – Angóla.
Leikir Íslands í D-riðli HM: 30. nóvember: Slóvenía - Ísland, kl. 17. 2. desember: Ísland - Frakkland, kl. 17. 4. desember: Angóla - Ísland, kl. 17. Íslenskir leiktímar. - Leikið verður í Stavanger Idrettshall (DNB-Arena) sem rúmar 4.100 áhorfendur í sæti. - Eftir riðlakeppnina heldur íslenska landsliðið áfram keppni annað hvort í Þrándheimi í Noregi ellegar í Frederikshavn í Danmörku.