- Auglýsing -
Báðir landsleikir Íslands og Færeyinga í handknattleik karla verða sendir út í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans, aðalrásinni. Fyrri viðureignin fer fram í Laugardalshöll annað kvöld, föstudag, og hefst klukkan 19.30, en sá síðari á laugardaginn klukkan 17.30.
Þetta verða fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar.
- Auglýsing -