Sandra Erlingsdóttir, leikstjórandi landsliðsins, hefur skorað 18 mörk í þremur leikjum á HM í Noregi/Svíþjóð og Danmörku, eða að meðaltali 6 mörk í leik. Hún á eftir að leika fjóra leiki á HM og nálgast markamet Karenar Knútsdóttur, leikstjórnanda á HM í Brasilíu 2011, sem skoraði 28 mörk í sex leikjum, eða að meðaltali 4,6 mörk í leik.
Ísland leikur um 25.-32. sæti í Frederikshavn í Danmörku, þar sem keppt verður um forsetabikarinn 7. – 13. desember. Mótherjar Íslands verða landslið Grænlands – á fimmtudag, Paraguay og líklega Kína. Þá leikur Ísland um sæti við eitt af þessum landsliðum; Kongó, Kazakhstan, Iran og líklega Chile.
Sandra á örugglega eftir að skora meira en 10 mörk í HM-leikjunum sem eru framundan og slá þar með met Karenar.
Sandra skoraði 7 mörk í leiknum gegn Frökkum á dögunum, 22:31. Karen hefur skorað flest mörk í HM-leik; 9 gegn Þýskalandi 2011, 26:20. Dagný Skúladóttir skoraði þá 8 mörk gegn Kína, 23:16 og Stella Sigurðardóttir 7 mörk gegn Angóla 2011, 24:28.
Þær konur sem hafa skoraði flest HM-mörk, leikir og mörk, eru þessar:
Nafn | leikir | mörk |
Karen Knútsdóttir | 6 | 28 |
Stella Sigurðardóttir | 6 | 22 |
Þórey Rósa Stefánsdóttir* | 9 | 19 |
Sandra Erlingsdóttir* | 3 | 18 |
Dagný Skúladóttir | 6 | 17 |
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir | 6 | 14 |
Thea Imani Sturludóttir* | 3 | 13 |
Anna Úrsúla Guðmundsd. | 6 | 12 |
Rut Arnfjörð Jónsdóttir | 6 | 11 |
*Sandra, Þórey Rósa og Thea Imani eiga eftir að leika fjóra HM-leiki.
Hér á myndunum eru þær Karen og Stella á vítapunktinum í leikjum á HM í Brasilíu 2011. Karen í leik gegn Þýskalandi og Stella í leik gegn Noregi.