- Auglýsing -
Fjórða flokks liðs Vals í handknattleik karla er kominn í undanúrslit á Balaton Cup-mótinu í Veszprém í Ungverjalandi þrátt fyrir tap fyrir Barcelona, 24:17, í síðasta leik riðlakeppninnar í gærkvöld. Valur mætir danska liðnu GOG í undanúrslitaleiknum sem hefst klukkan 13.
Logi Finnsson var markahæstur með fimm mörk í viðureigninni við Barcelona. Næstir voru Bjarki Snorrason með fjögur og mörk og Starkarður Björnsson skoraði þrisvar sinnum.
Þórhallur Höskuldsson, markvörður, var valinn maður leiksins. Hann fór á kostum.
Balaton cup er nú haldið í 32. sinn. Á mótinu taka þátt átta sterk evrópsk lið skipað drengjum sem eru fæddir 2008.
Hlekkur á streymi frá leik Vals og GOG í er að finna hér fyrir neðan.
- Auglýsing -