Íslenska landsliðið skoraði nánast jafn mörg mörk að jafnaði í leik á EM 2024 og það gerði á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu 2022. Þetta gerðist þrátt fyrir að mörgum hafi þótt nýting opinna færa og vítakasta væri ábótavannt að þessu sinni. Skoruð mörk á EM 2024 er á pari við meðaltalið frá 2000 eða 28,6 mörk. Meðatalið frá 2000 er 28,4 mörk í leik.
Fengu fleiri mörk á sig
Á móti kemur fékk íslenska landsliðið að meðaltali á sig rúmlega þremur mörkum fleiri í hverjum leik á EM að þessu sinni en fyrir tveimur árum, 29,8 að jafnaði í leik á móti 26,5 árið 2022. Meðaltalið nú er svipað og á EM 2012.
Þegar litið er til meðaltals frá öllum mótum frá 2000 þá fékk landsliðið á sig um einu marki meira í leik að þessu sinni en að jafnaði frá 2000 þegar íslenska landsliðið tók fyrst þátt.
Mörk skoruð af íslenska landsliðinu á EM karla:
Ár (fj.leikja) | skoruð mörk: | meðaltal: |
2000 (6) | 147 | 24,5 |
2002 (8) | 221 | 27,6 |
2004 (3) | 87 | 29,0 |
2006 (6) | 190 | 31,7 |
2008 (6) | 157 | 26,1 |
2010 (8) | 249 | 31,1 |
2012 (6) | 177 | 29,5 |
2014 (7) | 199 | 28,4 |
2016 (3) | 92 | 30,7 |
2018 (3) | 74 | 24,7 |
2020 (7) | 194 | 27,7 |
2022 (8) | 230 | 28,7 |
2024 (7) | 200 | 28,6 |
Samtals: | 2217 | 170,5 (28,4) |
Mörk sem íslenska landsliðið hefur fengið á sig á EM karla:
Ár (fj.leikja) | Fengin á: | meðaltal: |
2000 (6) | 162 | 27,0 |
2002 (8) | 209 | 26,1 |
2004 (3) | 96 | 32,0 |
2006 (6) | 191 | 31,8 |
2008 (6) | 172 | 28,7 |
2010 (8) | 240 | 30,0 |
2012 (6) | 178 | 29,7 |
2014 (7) | 199 | 28,4 |
2016 (3) | 101 | 33,7 |
2018 (3) | 82 | 27,3 |
2020 (7) | 194 | 27,7 |
2022 (8) | 212 | 26,5 |
2024 (7) | 209 | 29,8 |
Samtals: | 2245 | 172,7 (28,8) |