- Auglýsing -
Viktor Freyr Viðarsson og Andri Freyr Ármannsson hafa framlengt samningana sína við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2026. Þeir eru hluti af öflugum 2004 árgangi ÍR-inga og hafa látið til sín taka með meistaraflokki í Grill66-deildinni í vetur.
Viktor Freyr er vinstri hornamaður sem hefur skorað 11 mörk í 12 leikjum í vetur. Andri, sem leikur í stöðu línumanns, hefur komið öflugur inn í varnarleik liðsins auk þess að hafa skorað 5 mörk í 12 leikjum.
„Við hjá handknattleiksdeild ÍR erum glöð að halda þessum miklu ÍR-ingum heima í Skógarseli næstu árin,“ segir m.a. í tilkynningu.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
- Auglýsing -