- Auglýsing -
- Tveir Íslendingar eru í liði 24. umferðar 2. deildar þýska handknattleiksins sem valið var í gærmorgun en umferðinni lauk á sunnudagskvöld. Sveinbjörn Pétursson er markvörður úrvalsliðsins en hann fór á kostum þegar EHV Aue vann Tusem Essen á heimavelli á sunnudagskvöld, 26:21. Sveinbjörn varði 12 skot, 39%.
- Hinn Íslendingurinn í liði umferðarinnar er Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson. Hákon lék á als oddi og skoraði m.a. 11 mörk þegar Eintracht Hagen vann TV Hüttenberg, 33:29, á heimavelli á laugardaginn. Hagen er í fjórða sæti deildarinnar.
- Bjartsýni ríkir um að Johannes Golla og Jannik Kohlbacher geti báðir leikið með þýska landsliðinu forkeppni Ólympíuleikanna sem hefst á fimmtudaginn í Hannover. Báðir urðu fyrir hnjaski í leikjum um síðustu helgi og var um tíma óttast hvort hvorugur gæti tekið þátt í leikjunum mikilvægu við Alsír, Austurríki og Króatíu á fimmtudag, laugardag og á sunnudag. Tveir farseðlar á Ólympíuleikana eru í húfi í forkeppninni.
- Íslenska landsliðið í handknattleik karla kom til Aþenu seint í gærkvöld. Fyrsta æfingin verður í dag og æft verður áfram fram eftir vikunni áður en kemur að vináttuleikjum við gríska landsliðið á föstudag og laugardag. Ekkert liggur fyrir hvort leikirnir verði sendir út í sjónvarpi eða á netinu.
- Maik Machulla var á föstudaginn ráðinn þjálfari danska handknattleiksliðsins Aalborg Håndbold til tveggja ára. Machulla tekur við starfinu í sumar þegar Stefan Madsen lætur af störfum eftir sex ár í brúnni. Machulla er þrautreyndur þýskur þjálfari sem þjálfaði m.a. Flensburg frá 2017 til 2023. Á þeim árum vann Flensburg m.a. tvisvar þýska meistaratitilinn.
- Þýska handknattleiksliðið THW Kiel hefur samið við ungverska landsliðsmanninn Bence Imre. Hinn 21 árs gamli hægri hornamaður kemur til Kiel frá Ferencváros (FTC) í Búdapest.
- Auglýsing -