- Auglýsing -
Fyrirhuguðum leik KA og Víkings í Olísdeild karla sem fram átti að fara í KA-heimilinu í kvöld hefur verið frestað vegna afleitrar færðar á vegum sökum norðanáhlaups sem staðið hefur yfir síðustu daga.
Í tilkynningu mótanefndar HSÍ kemur fram að stefnt er á að leikurinn fari fram á morgun. Vonir standa til að flautað verði til leiks í KA-heimilinu klukkan 17.30.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -