„Eftir upphafsmínúturnar leit út fyrir að að þetta gæti orðið basl í 60 mínútur en segja má að eftir að við núllstilltum okkur eftir um tíu mínútna leik þá vorum við ótrúlega flottir í 50 mínútur,“ sagði Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA í samtali við samfélagsmiðla félagsins eftir sigur á Víkingi, 33:18, í 19. umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Með sigrinum færðist KA upp í sjöunda sæti deildarinnar.
KA skoraði átta mörk í röð án svars frá Víkingi eftir leikhlé á tíundu mínútu í stöðunni, 5:1, fyrir Víking.
„Vörn og markvarsla var frábær hjá okkur,“ sagði Halldór Stefán sem stefnir á að vinna Aftureldingu í 20. umferð Olísdeildar á miðvikudagskvöld.
Viðtalið við Halldór Stefán í held sinni er að finna hér fyrir neðan.
Halldór Stefán þjálfari KA glaðbeittur eftir góðan sigur á Víkingum í kvöld @handboltiis @handkastid pic.twitter.com/GvQ6JAILxB
— KA (@KAakureyri) March 23, 2024
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.