Handknattleiksmaðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson, sem samdi við KA í síðustu viku, sleit hægri hásin á laugardaginn og verður frá keppni næsta hálfa árið, hið minnsta. Hann fer í aðgerð í vikunni eftir því sem greint er frá á handball-world.
Í síðustu viku var opinberað að Bjarni Ófeigur gangi til liðs við KA í sumar. Ljóst er að svona alvarleg meiðsli geta sett strik í reikning fyrstu vikur Bjarna með Akureyrarliðinu.
Bjarni Ófeigur meiddist rétt fyrir miðjan fyrri hálfleik í grannaslag GWD Minden og TuS N-Lübbecke á heimavelli síðdegis á laugardaginn. Minden vann leikinn, 31:25.
Meiðsli Bjarna Ófeigs eru reiðarslag fyrir GWD Minden sem er í harðri fallbaráttu í 16. og þriðja neðsta sæti 2. deildar þýska handknattleiksins. Auk meiðsla Bjarna hlaut einn samherji hans höfuðhögg í leiknum og verður frá keppni um óákveðinn tíma. GWD Minden þarf á öllum kröftum að halda næstu vikurnar til að forðast fall í 3. deild í fyrsta sinn í sögu sinni.