„Þetta var svipaður leikur og fyrri viðureignin við KA. Við vorum eftir á í mörgum atriðum og náðum aldrei upp almennilegum dampi,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í samtali við samfélagsmiðla KA eftir að hans menn töpuðu með fimm marka mun fyrir KA, 34:29, í næst síðustu umferð Olísdeildar karla í KA-heimilinu í kvöld.
Með tapaði Valur fyrir FH í kapphlaupinu um deildarmeistaratitilinn. FH vann sinn leik og hefur þriggja stiga forskot fyrir lokaumferðina fyrir síðustu umferð Olísdeildar sem fram fer á föstudaginn.
Ekki álagi að kenna
Óskar Bjarni vildi ekki skrifa tapið á reikning álags vegna þátttöku í Evrópukeppninni en Valur komst í undanúrslit eftir frábæran sigur á Steaua Búkarest á laugardagskvöldið.
„Ég er óánægður með að við gerðum mörg mistök,“ sagði Óskar Bjarni en nánar er hægt að horfa og hlusta á viðtalið hér fyrir neðan.
Óskar Bjarni í viðtali eftit 5 marka tap á Akureyri í kvöld @handkastid @handboltiis @valurhandbolti pic.twitter.com/LsEFqHF6HD
— KA (@KAakureyri) April 2, 2024
Sjá einnig: FH er deildarmeistari – Víkingur og Selfoss fallin