- Auglýsing -
- Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Telekom Veszprém þegar liðið vann CYEB-Budakalász, 43:30, í 21. umferð af 26 í ungversku 1. deildinni í handknattleik í gær. Telekom Veszprém er í efsta sæti sem fyrr með fullt hús stiga og virðist eiga deildarmeistaratitilinn vísan.
- Bjarki Már er í liði umferðarinnar í Meistaradeild Evrópu eftir leikina í síðustu viku. Veszprém vann þá Pick Szeged öðru sinni í útsláttarkeppninni og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Myndskeið með tilþrifum þeirra sem eru í liði umferðarinnar er að finna hér fyrir neðan.
The 𝗕𝗘𝗦𝗧 𝟳 – 2nd Leg | Play-offs are here! ✨ #CLM#ehfcl #DareToRise
— EHF Champions League (@ehfcl) April 5, 2024
Best defender ➡️ Karl Konan 🛡️
MVP ➡️ Elohim Prandi🌟 pic.twitter.com/Z0v8SEyJhn
- Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark og var einu sinni vikið af leikvelli þegar lið hans GWD Minden vann mikilvægt stig í botnbaráttu 2. deildar þýska handknattleiksins í gær. Minden gerði jafntefli við Dessau-Rosslauer HV 06, 35:35, í Dessau. GWD Minden færðist upp um eitt sæti, í það fimmtánda, með stiginu í gær og er sex stigum fyrir ofan TuS Vinnhorst sem er næst neðst. Tvö lið falla úr deildinni í lok keppnistímabilsins.
- Áfram syrtir í álinn hjá EHV Aue í botnbaráttu 2. deildar þýska handknattleiksins. Liðið tapaði með tíu marka mun í heimsókn til Elbflorenz í Dresden í gær, 39:29. Þar með situr liðið áfram á botninum með 10 stig eftir 26 leiki. Átta umferðir eru eftir. Tus Vinnhorst er næst fyrir ofan með 13 stig. Tvö lið falla úr deildinni.
- Sveinbjörn Pétursson varði eitt skot af 11 þann tíma sem hann stóð vaktina í marki EHF Aue-liðsins sem Ólafur Stefánsson hefur þjálfað síðan í nóvember.
- Auglýsing -