- Auglýsing -
- Haukur Þrastarson og samherjar í Industria Kielce komust í undanúrslit í úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í gær þegar þeir lögðu MMTS Kwidzyn, 40:25, á heimavelli í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum. Haukur skoraði tvö mörk í leiknum.
- Lærisveinar Halldórs Jóhanns Sigfússonar í Nordsjælland unnu í gær mikilvægan sigur á Skanderborg AGF í umspilskeppni fimm neðstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar, 31:26, á heimavelli. Þar með stigu leikmenn Nordsjælland stórt skref í átt að því að forðast neðsta sæti umspilskeppninnar. Liðið sem hafnar í því sæti mætir liði úr 1. deild í rimmu um keppnisrétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
- Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica í gærkvöld þegar liðið tapaði fyrir Porto í fyrstu umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1. deildarinnar um meistaratitilinn, 36:32.
- Sigurður Jónsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna. Sigurður var í liði Stjörnunnar í hverjum einasta leik liðsins í Olísdeildinni í vetur og skoraði m.a. 10 mörk.
- Auglýsing -