- Auglýsing -
Amelía Laufey G. Miljevic hefur framlengt samning sinn við handknattleikslið HK. Amelía lék stórt hlutverk í vetur í ungu liði HK. Hún spilaði alla 18 leiki liðsins í Grill 66 deildinni og skoraði í þeim 46 mörk.
„Amelía er öflug á báðum endum vallarins og er mikil keppnismanneskja sem leggur sig alltaf 100% fram í öllu sem hún gerir,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar HK í dag.
- Auglýsing -