Önnur rimma undanúrslita Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld. Afturelding tekur þá á móti bikarmeisturum Vals að Varmá. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, dómarar, gefa upphafsmerki klukkan 19.40.
Afturelding og Valur höfnuðu í öðru og þriðja sæti Olísdeildar karla og mættust síðast í lokaumferð deildarinnar 5. apríl á heimavelli Vals. Aftureldingarliðið vann með eins marks mun, 35:34.
Afturelding vann Stjörnuna í oddaleik í átta liða úrslitum. Valur lagði Fram auðveldalega með miklum mun í tveimur leikjum.
Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá í sjónvarpi Símans en einnig á handboltapassanum.
Upphitun í vallarhúsi
Í tilkynningu frá Aftureldingu kemur fram að upphitun stuðningsmanna hefjist í vallarhúsinu að Varmá kl. 17.30. Þar verður bæði vott og þurrt til sölu í tilefni af síðasta vetrardegi.
Valsmenn halda til Rúmeníu í fyrramálið. Þar bíður þeirra síðari viðureignin við Minaur Baia Mare í undanúrslitum Evrópubikarkeppninnar á sunnudaginn.