FH jafnaði metin í úrslitarimmunni við Aftureldingu um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla með eins marks sigri, 28:27, að Varmá í gærkvöld að viðstöddum 1.400 áhorfendum. Liðin hafa þar með einn vinning hvort en vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.
Næsti leikur liðanna fer fram í Kaplakrika á sunnudaginn. Flautað verður til leiks klukkan 19.40. Miðasala hefst innan tíðar á stubb.is.
Jói Long kom í Mosfellsbæinn í gær og myndaði viðureignina. Hér fyrir neðan er nokkrar myndir hans. (Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri).
Sjá einnig:
FH-ingar jöfnuðu metin – Aron kom, sá og sigraði
Er bara svo stutt á milli þessara liða
Það var ekkert annað á dagskrá hjá okkur
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni