- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Jafnt í Grikklandi, Kasahara, sjálfboðaliðar, Cindric, Pascual

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • AEK Aþena jafnaði metin í keppninni við Olympiakos um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær með tveggja marka sigri á heimavelli, 25:23. Olympiakos vann fyrsta leikinn með sömu markatölu fyrr í vikunni. Næsti leikur liðanna verður á heimavelli Olympiakos á mánudaginn og fjórða viðureignin fimmtudaginn 13. júní. Vinna þarf þrjá leiki til að verða grískur meistari
  • Kenya Kasahara leikmaður Harðar á Ísafirði er á meðal þeirra sem eru í 20 leikmanna æfingahópi japanska karlalandsliðsins fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í París í sumar.  Fækkað verður í hópnum niður í 14 leikmenn í lok mánaðarins. 
  • Fjórtán er sá hámarks fjöldi leikmanna sem hvert lið má senda til keppni í handknattleik á ÓL. Reyndar hafa reglur um varamenn utan hóps verið rýmkaðar upp í þrjá úr einum. Varamennirnir búa utan Ólympíuþorpsins.
  • Úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handknattleik fer fram í Lanxess Arena í Köln á laugardag og sunnudag. Evrópumeistarar síðasta árs, Magdeburg, leikur við Aalborg í undanúrslitum á morgun. Í hinni viðureign undanúrslita mætast Barcelona og THW Kiel. Uppselt er á báða leikdaga, 19.500 miðar voru seldir á hvorn þeirra.  Rétt rúmlega 200 sjálfboðaliðar gefa vinnu sína í og við keppnishöllina þessa helgi. 
  • Talið er víst að króatíski handknattleiksmaðurinn Luka Cindric elti spænska þjálfarann Xavier Pascual frá Dinamo Búkarest til Telekom Veszprém. Cindric mun hafa uppsagnarákvæði í samningi sínum við Dinamo þess efnis að ef Pascual hættir þá eigi Cindric útgönguleið úr samningi sínum. Cindric elti Pascual til Rúmeníu á sínum tíma en Cindric lék undir stjórn hans hjá Barcelona
  • Enn er beðið staðfestingar hjá Veszprém á ráðningu Pascual í starf þjálfara og þar með uppsögn Momir Ilic sem þjálfað hefur lið ungversku meistaranna síðustu þrjú ár. Dinamo greindi á hinn bóginn frá samningslokum Pascual hjá félaginu fyrir nokkkrum dögum.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -