- Auglýsing -
Handknattleiksdeild Fram staðfesti í morgun fregnir gærdagsins þess efnis að Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Pétursson þjálfi kvennalið félagsins á næsta keppnistímabili. Rakel Dögg hefur verið í þjálfarateymi kvennaliðsins undanfarin ár en Arnar kemur nýr til starfa hjá félaginu. Hann er þjálfari kvennalandsliðsins og heldur því starfi áfram.
Einar Jónsson var aðalþjálfari kvennaliðs Fram á síðasta tímabili samhliða þjálfun karlaliðs félagsins. Hann ætlar að einbeita sér að þjálfun karlaliðsins.
Rakel Dögg sögð taka við Fram og hafa landsliðsþjálfarann til halds og trausts
Þjálfarar – helstu breytingar 2024
- Auglýsing -