- Auglýsing -
- Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands gerði eina breytingu á leikmannahópi sínum í gær fyrir leikinn við Spánverja í næst síðustu umferð riðlakeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í dag. Justus Fischer var kallaðurinn í hópinn í stað Jannik Kohlbacher. Fischer er 21 árs gamall leikmaður Hannover-Burgdorf.
- Viðureign Þýskalands og Spánar hefst klukkan 14. Sigurlið leiksins ætti að vera öruggt um sæti í átta liða úrslitum.
- Bence Imre, Zoltan Szita og Kristof Palasics urðu að draga sig út úr leikmannahópi Ungverja á Ólympíuleikunum í gærkvöld. Roland Mikler, Egon Hanusz og Miklos Rost koma í þeirra stað. Ungverjar mæta Dönum í fyrsta leik dagsins. Flautað verður til leiks klukkan 7 árdegis á íslenskum tíma.
- Magnus Saugstrup mætir til leiks á ný með Dönum eftir að hafa setið yfir vegna ökklameiðsla gegn Argentínu í fyrradag. Lasse Andersson verður ekki í 14 manna hópi Dana í dag vegna endurkomu Saugstrup.
- Yanis Lenne leikur væntanlega ekki fleiri leiki með franska landsliðinu á Ólympíuleiknum vegna meiðsla á ökkla. Dylan Nahi tognaði í leiknum við Egypta og verður a.m.k. ekki með franska liðinu í dag gegn Argentínu.
- Í stað Lenne og Nahi taka Aymeric Minne og Nicolas Tournat sæti í franska liðinu í dag. Viðureign Frakka og Argentínumanna hefst klukkan 9 árdegis að íslenskum tíma.
- Enn berast fregnir af rútubílstjórum sem annað hvort rata ekki á milli áfangastaða með íþróttafólk á Ólympíuleikunum eða þá að festast í umferðateppu. Danska kvennalandsliðið mætti seinna í keppnishöllina í París í gær en til stóð áður en það lék við þýska landsliðið. Bílstjóri danska liðsins lenti á villigötum á leið sinni með liðið í keppnishöllina. Honum lánaðist að komast inn á rétta sporið fyrir rest.
- Mathias Gidsel er markahæsti leikmaður handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum áður en fjórða umferðin hefst í dag. Hann hefur skoraði 32 mörk, níu fleiri en landi hans Simon Pytlick sem er næst markahæstur. Egyptinn Yahia Omar er í þriðja sæti með 22 mörk.
- Blaz Janc, Slóveníu, Ahmed Mesilhy, Egyptalandi, Kosuke Yasuhira, Japan og Ungverjinn Bence Imre hafa skoraði 20 mörk hver.
- Hollenska handknattleikskonan Angela Malestein og Vilma Nenganga frá Angóla eru jafnar með 23 mörk hvor á skrá yfir markahæstu leikmenn handknattleikskeppni kvenna á Ólympíuleiknum. Ungverjinn Katrin Klujber er næst á eftir með 22 mörk. Ana Gros frá Slóveníu hefur skorað 21 mark og Hollendingurinn Dione Housheer hefur skoraði 20 mörk.
- Auglýsing -