Eins og kom fram fyrr í dag þá slógu Þjóðverjar út Ólympíumeistara Frakka í framlengdum háspennuleik í átta liða úrslitum handknattleikskeppni karla, 35:34, að viðstöddum liðlega 27 þúsund áhorfendum í Stade Pierre Mauroy Arena í Lille. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands sagði í samtali við þýska fjölmiðla að frammistaða liðsins hafi verið ofurmannleg.
Axarskaft Frakkans Dika Mem á síðustu sekúndum venjulegs leiktíma, færði Þjóðverjum jöfnunarmarkið, 29:29, og síðan var heldur ekki síðri dramatík á síðustu 30 sekúndum framlengingarinnar með jöfnunarmarki Frakka og sigurmarkið Þjóðverja.
Hér fyrir neðan er tvö myndskeið frá RÚV með atvikunum sem verða lengi í minnum höfð.
ÓTRÚLEGAR lokasekúndur í venjulegum leiktíma í leik Þýskalands og Frakklands í 8-liða úrslitum! 0,1% líkur segir Höddi Magg, ég skal sýna þér 0,1% líkur segir Renars Uscins😱🤯 pic.twitter.com/QZecCfJx7K
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 7, 2024
Ekki var dramatíkin minni á lokasekúndum framlengingarinnar en Alfreð Gíslason og Þjóðverjar slá ríkjandi Ólympíumeistara Frakka út á heimavelli og eru komnir í undanúrslit👏👏 pic.twitter.com/SOKZFstagA
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 7, 2024
Þýskaland mætir Spáni í undanúrslitum á föstudaginn klukkan 14.30.
ÓL: Alfreð og Þjóðverjar hentu Frökkum út í mögnuðum leik