Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Ísak Steinsson átti afar góðan leik í marki Drammen í kvöld þegar liðið vann Bodø, 38:30, á heimavelli í 16-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í handknattleik. Ísak stóð í marki Drammen allan leikinn, varði 12 skot, 31%.
Annar hálf íslenskur piltur, Viktor Petersen Norberg, skoraði tvö mörk fyrir Drammen-liðið sem var sex mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 20:14.
Drammen varð þar með þriðja liðið sem íslenskir handknattleiksmenn leika með sem tryggir sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Dagur Gautason og félagar í ØIF Arendal unnu Bækkelaget á föstudaginn, 32:29, og í dag lagði Kolstad með fjóra Íslendinga innanborðs Bergen Håndball, 32:28.
Auk ØIF Arendal, Drammen og Kolstad eru Elverum, Halden, Nærbø, Viking TIF og Runar í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Dregið verður í hádeginu á morgun, mánudag.