- Auglýsing -
(Frétttilkynning frá HSÍ)
Handboltakvöld er umræðuþáttur um málefni líðandi stundar í þjóðaríþróttinni á Handboltapassanum. Fyrsti þátturinn kom inn á Handboltapassann í vikunni og verða þættirnir vikulega í vetur. Stjórnandi Handboltakvölds er Ingvar Örn Ákason og fyrstu gestir hans voru Einar Ingi Hrafnsson, fyrrverandi leikmaður Aftureldingar og sérfræðingur í útsendingum frá Olísdeildinni og Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram og A landsliðs kvenna.
Í þættinum í vetur verður fjallað um deildarkeppnirnar hér heima ásamt því að fjallað verður um landsliðin og þátttöku íslenskra liða í Evrópukeppninni.
- Auglýsing -