- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Elín Jóna, Jóhanna, Berta

ELín Jóna Þorsteinsdóttir landsliðsmarkvörður og leikmaður Aarhus United í Danmörku. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Elín Jóna Þorsteinsdóttir landsliðsmarkvörður og félagar hennar í Aarhus Håndbold töpuðu í gær fyrir Silkeborg-Voel, 32:25, á heimavelli í 7. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Elín Jóna stóð í marki Aarhus Håndbold um það bil hálfan leikinn og varði sex skot, 27%. Þar af varði Elína Jóna eitt vítakast. Aarhus Håndbold  situr í 12. sæti af 14 liðum úrvalsdeildar með fjögur stig að loknum sjö leikjum. 
  • Ekki nægði sænska liðinu Kristianstad HK að vinna Önnereds með fjögurra marka mun, 29:25, í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum sænsku bikarkeppninnar í kvennaflokki á mánudagskvöldið. Önnereds vann fyrri viðureignina með átta marka mun, 38:30.
  • Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 2 mörk fyrir Kristianstad. Berta Rut Harðardóttir skoraði ekki að þessu sinni.  Báðar eru væntanlegar til landsins með Kristianstad HK-liðinu fyrir vikulokin vegna viðureignar Vals og Kristianstad HK í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í N1-höllinni á Hlíðarenda klukkan 16.30 á laugardag.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -