- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einar tekur fram og skóna og gengur til liðs við FH

Einar Sverrisson gengið til liðs við Íslandsmeistara FH. Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Einar Sverrsson handknattleiksmaður frá Selfossi hefur tekið fram skóna á nýjan leik og samið við Íslandsmeistara FH um að leika liði félagsins út keppnistímabilið. Einar tók sé hvíld frá handbolta síðasta vor þegar Selfoss féll út Grill 66-deildinni eftir að hafa glímt við meiðsli.


Einar, sem er 32ja ára gamall, leikur í stöðu vinstri skyttu auk þess að vera mjög öflugur varnarmaður. Hann lék 21 leik í Olísdeildinni á síðasta tímabili og var markahæsti leikmaður Selfoss með 76 mörk. Einar varð Íslandsmeistari árið 2019 og er markahæsti leikmaður í sögu handknattleiksdeildar Selfoss með 1.204 mörk í 272 leikjum.

Einnig lék Einar með ÍBV frá 2014 til 2016.

FH mætir Stjörnunni á heimavelli á þriðjudaginn þegar keppni hefst á ný í Olísdeild karla eftir hlé vegna jóla og heimsmeistaramótsins í handknattleik.

Staðan í Olísdeildum.

Kannski vakna ég upp við að það sé leiðinlegt að hanga heima

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -