Með nokkrum ólíkindum þykir að Daninn Lasse Andersson, lykilmaður hjá Füchse Berlín, hafi getað tekið þátt í síðari leik liðsins gegn Bjarka Má Elíssyni og félögum í Veszprém á miðvikudagskvöld. Andersson var fárveikur stuttu fyrir leikinn.
Handball World greinir frá því að Daninn hafi kvöldið áður legið kvalinn á baðherbergi sínu með hita og svæsna sýkingu í meltingarvegi. Á miðvikudagsmorgninum var hann fluttur á sjúkrahús.
„Hann var í alvarlegum vandræðum með magann á sér,“ sagði Nicolej Krickau, þjálfari Füchse. Á leikdegi skrifaði Bernd Wohlfahrt, læknir félagsins, upp á lyf til þess að lina kvalir Andersson. Vonast var til þess að hann gæti kannski spilað í stundarfjórðung.
Líkurnar undir tíu prósentum
Andersson endaði hins vegar á að vera í lykilhlutverki hjá Füchse í sigri liðsins, sem kom ekki fyrr en í vítakastskeppni eftir gífurlega spennu. Hann skoraði sex mörk og sýndi lítil merki um þreytu þrátt fyrir að hafa verið fárveikur stuttu fyrir leikinn.
„Ég geri þetta ekki oft en í dag verð ég að klappa sérstaklega fyrir Lasse. Að sýna þessa frammistöðu undir þessum kringumstæðum ber vott um þann karakter sem hann hefur að geyma,“ sagði Krickau einnig.
Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse, áréttaði að um mikið afrek væri að ræða. „Líkurnar á því að Lasse gæti yfir höfuð spilað leikinn voru undir tíu prósentum,“ sagði Hanning.


