- Auglýsing -
- Auglýsing -

Æfingar 14 ára og yngri hjá KA falla niður fram eftir viku

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Allar æfingar fyrir 14 ára og yngri í handknattleik og fleiri íþróttum hjá KA falla niður fram á fimmtudag vegna fjölda Covid-smita á Akureyri, ekki síst meðal barna og unglinga. Frá þessu er greint á heimasíðu KA.


„Flokkarnir sem eru komnir í smá frí frá æfingum eru 5. flokkur og niður í handbolta, 4. flokkur og niður í fótbolta og U14 og niður í blaki.

Það er miður að þurfa að grípa til þessara ráðstafana, en nauðsynlegt í ljósi aðstæðna. Covid ástandinu er ekki lokið og við þurfum áfram að takast á við stöðuna saman,“ segir í tilkynningu á heimasíðu KA á Akureyri.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -