- Auglýsing -
- Auglýsing -

Æfingum yngstu landsliðanna slegið á frest

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Tekin hefur verið ákvörðun um að færa æfingar yngstu landsliða í handknattleik sem til stóð að færu fram um næstu helgi, 6. – 8. ágúst, til helgarinnar 27. – 29. ágúst. Er þetta gert vegna vaxandi smita kórónuveiru í samfélaginu, segir í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands. Æfingar U17 ára landsliðs kvenna og U19 ára landsliðs karla fyrir Evrópumót sem hefjast á næstu dögum raskast ekki.

Eftir að samráð var haft við ÍSÍ, heilbrigðisráðuneytið og sóttvarnarlækni þótti ljóst að þar sem um miklu blöndun er að ræða væri skynsamlegt að færa æfingarnar aftur um nokkrar vikur og verður staðan tekin aftur þá.

Undirbúningur U-17 kvenna og U-19 karla fyrir EM heldur þó áfram, U-17 ára landslið kvenna tekur þátt í B-deild EM í Litháen og heldur utan föstudaginn 6. ágúst og U-19 ára landslið karla tekur þátt í EM í Króatíu en drengirnir fara út þriðjudaginn 10. ágúst.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -