- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfram styrkir Wetzlar sig

- Auglýsing -

Þýska félagið HSG Wetzlar heldur áfram að hugsa til framtíðar hjá karlaliði sínu, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Spánverjinn Marti Soler gengur til liðs við félagið í sumar frá MT Melsungen.

Soler er 23 ára vinstri hornamaður og sterkur bakvörður í vörninni. Hann semur við Wetzlar til næstu tveggja ára, óháð því hvort liðið spili í efstu eða B-deild þýska handboltans.


Wetzlar hefur staðið í ströngu við að semja við nýja leikmenn og leikmenn sem fyrir eru að undanförnu. Allir eru þeir reiðubúnir að taka slaginn í B-deildinni fari svo að liðið falli úr 1. deildinni.

Þegar þrjár umferðir eru óleiknar í 1. Deildinni er spennan í fallbaráttunni gífurleg. Wetzlar er í 16. Sæti fyrir ofan fallsæti en með 15 stig líkt og GWD Minden í 17. sæti. Botnlið DHfK Leipzig er þá skammt undan með 13 stig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -