Alex Kári Þórhallsson hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Gróttu á Seltjarnarnesi. Nýi samningurinn gildir til loka tímabilsins 2028.
Alex Kári er tvítug hægra skytta og hornamaður sem skoraði 15 mörk í 21 leik í Grill 66 deildinni og umspili hennar á tímabilinu.
„Alex Kári kemur úr öflugum 2006 árgang hjá félaginu sem endaði í 2.sæti á Íslandsmótinu með 3.flokki á síðustu leiktíð. Liðið varð ennfremur bikarmeistari þar sem Alex Kári átti sannkallaðan stórleik.
Það eru góð tíðindi að Alex Kári verði áfram í Gróttu enda öflugur örvhentur leikmaður sem á eftir að blómstra. Alex er framtíðarleikmaður félagsins og eru miklar vonir bundnar við á næstu árum,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.



