- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andri kemur til baka í heimahagana

Andri Sigfússon t.h. ásamt Maksim Abkasev yfirþjálfari Gróttu. Mynd/Grótta
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Gróttu hefur ráðið Andra Sigfússon sem verkefnastjóra deildarinnar auk þess sem Andri tekur að sér þjálfun yngri flokka hjá Gróttu. Andri hefur undanfarin þrjú ár verið yfirþjálfari hjá handknattleiksdeild Fjölnis og og þjálfað yngri flokka deildarinnar. Hann lýkur störfum í Grafarvogi í byrjun sumars.

„Andra þarf vart að kynna fyrir Gróttufólki. Hann er uppalinn hjá félaginu og lék upp alla yngri flokka með Gróttu auk þess sem hann lék með meistaraflokki til ársins 2009. Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur starfað sem þjálfari hjá deildinni frá árinu 2002. Undanfarin ár hefur Andri verið yfirþjálfari hjá Fjölni. Andri er silfurmerkjahafi Gróttu og var íþróttastjóri félagsins árin 2008 til 2012 . Andri mun taka að sér þjálfun 6. flokks karla og 4. flokks karla,“ segir í tilkynningu frá Gróttu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -