- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andri ráðinn yfirþjálfari hjá Gróttu

Andri Sigfússon og Hulda Björk Halldórsdóttir formaður barna- og unglingaráðs Gróttu. Mynd/Grótta
- Auglýsing -

Andri Sigfússon hefur tekið við sem yfirþjálfari handknattleiksdeildar Gróttu af Magnúsi Karli Magnússyni sem lét af störfum á dögunum. Andri er uppalinn Gróttumaður, æfði með félaginu frá unga aldri og hóf svo þjálfun árið 2002.

Það má með sanni segja að Andri sé einn af reyndustu og öflugustu þjálfurum Gróttu og því mikill fengur að fá hann sem yfirþjálfara, segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

Ásamt því að sinna yfirþjálfarastarfinu og þjálfun nokkurra flokka hjá Gróttu, er Andri þjálfari U-liðs Gróttu og U-16 landsliðs karla. Andri er afar metnaðarfullur og kraftmikill þjálfari og það er mikil tilhlökkun hjá stjórn barna-og unglingaráðs Gróttu fyrir komandi samstarfi.

„Ég hlakka mikið til að hefja störf og halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið í vetur og undanfarin ár. Grótta hefur á að skipa virkilega öflugum hópi þjálfara sem hefur unnið frábært starf með okkar fjölmörgu iðkendum. Vonandi náum við í sameiningu að bæta okkar starf enn þá meira,” sagði Andri í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -