- Auglýsing -
- Auglýsing -

Annað jafntefli á þremur dögum í Dalhúsum

Þorleifur Rafn Aðalsteinsson tryggði Fjölni annað stigið gegn Þór í Dalhúsum í kvöld. Mynd/Þorgils G.
- Auglýsing -

Fjölnismenn luku keppnisárinu í Grill 66-deild karla með tveimur jafnteflum með þriggja daga millibili. Síðara jafnteflið tryggði Þorleifur Rafn Aðalsteinsson liði Fjölnis í kvöld í viðureign við Þór Akureyri í Dalhúsum þegar hann jafnaði metin, 24:24, skömmu áður en leiktíminn var úti.


Á þriðjudagskvöld skildu Fjölnir og ungmennalið Hauka jöfn í Dalhúsum, 31:31.


Viðureign liðanna, Fjölnis og Þórs í kvöld var jöfn og niðurstaðan þar með sennilega nokkuð sanngjörn. Þórsarar voru marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 11:10. Í síðari hálfleik skiptust liðin á um að vera marki yfir nema hvað Fjölnir komst einu sinni tveimur mörkum yfir, 21:19, þegar um átta mínútur voru til leiksloka.


Bæði reyndu hvað þau gátu á síðustu mínútu, tóku leikhlé og lögðu á ráðin eftir að Þorleifur Rafn jafnaði metin. Allt kom fyrir ekki. Fleiri mörk voru ekki skoruð.


Fjölnir og Þór eru jöfn með 10 stig hvort þegar hlé verður gert á keppni í Grill 66-deildinni. Fjölnir hefur lokið 10 leikjum en Þór 11. Stöðuna í Grill 66-deild karla má sjá hér.


Línumaður Þórs, Kostadin Petrov, heldur nú heim til Norður Makedóníu og tekur til við að æfa með landsliði sínu fyrir heimsmeistaramótið sem stendur fyrir dyrum í næsta mánuði.


Mörk Fjölnis: Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 6, Alex Máni Oddnýjarson 4, Björgvin Páll Rúnarsson 4, Viktor Berg Grétarsson 4, Óðinn Freyr Heiðmarsson 3, Goði Ingvar Sveinsson 1, Elvar Þór Ólafsson 1, Benedikt Marinó Herdísarson 1.
Varin skot: Andri Hansen 8.
Mörk Þórs: Jóhann Geir Sævarsson 7, Kostadin Petrov 6, Josip Vekic 3, Aron Hólm Kristjánsson 2, Jonn Rói Tórfinnsson 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 2, Jón Ólafur Þorsteinsson 1, Viðar Ernir Reimarsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 5, Arnar Þór Fylkisson 2.

Staðan í Grill 66-deild karla og næstu leikir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -