- Auglýsing -
Daníel Freyr Andrésson kvaddi Lemvig-Thyborøn með öðrum stórleiknum í röð í kvöld þegar liðið tryggði sér áframhaldandi veru í dönsku úrvalsdeildinni með stórsigri á Team Sydhavsøerne, 34:22. Þetta var annar sigur Lemvig-Thyborøn í umspilinu.
Daníel Freyr varði 19 skot í leiknum í kvöld, 46,3% hlutfallsmarkvarsla. Hann var með 50% markvörslu í fyrsta leiknum.
Lemvig var marki yfir í hálfleik, 13:12. Í síðari hálfleik skildu leiðir liðanna, ekki síst vegna stórleiks Daníels Freys sem kemur til liðs við uppeldisfélag sitt, FH, í sumar.
- Auglýsing -