Antoine Óskar Pantano er genginn til liðs við FH frá uppeldisfélagi sínu Gróttu. Skrifar hann undir þriggja ára samning, til sumarsins 2029.
Antoine Óskar er 19 ára gamall leikstjórnandi sem var í lykilhlutverki hjá Gróttu í Grill 66 deildinni á nýafstöðnu tímabili.
Skoraði hann 105 mörk í 22 leikjum í Grill deildinni og tveimur leikjum í umspili um að komast upp í Olísdeildina, sem Gróttu auðnaðist ekki. Antoine Óskar, sem verður tvítugur síðar á árinu, hefur verið hluti af yngri landsliðum Íslands undanfarin ár.
„Antoine er virkilega efnilegur leikmaður sem við teljum passa frábærlega í okkar lið og okkar kúltúr en hér í Kaplakrika er allt til alls fyrir leikmenn að ná árangri. Við bjóðum Antoine velkominn í FH, væntum mikils af honum og hlökkum til að sjá hann í hvítu treyjunni,“ sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður handknattleiksdeildar FH við undirskriftina.


