- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ari Pétur á heimaslóðum fram til ársins 2026

Ari Pétur Eiríksson heldur tryggð við uppeldisfélag sitt. Mynd/Grótta
- Auglýsing -

Ari Pétur Eiríksson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2026. Ara Pétur þarf vart að kynna fyrir Gróttufólk, segir í tilkynningu frá deildinni, enda hefur hann leikið 90 leiki fyrir félagið.

Ari Pétur er 21 árs gamall og leikur sem hægri skytta. Hann hefur skorað 17 mörk sem af er Olísdeildarinnar. Þess fyrir utan er hann með 28 sköpuð færi fyrir liðsfélaga sína. 

Ari Pétur hefur leikið með flestum yngri landsliðum Íslands.  

„Það eru gleðifréttir að Ari Pétur verði áfram í herbúðum Gróttu. Miklar vonir eru bundnar við þennan uppalda Gróttumann og verður spennandi sjá hann næstu misserin,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

Reikna má með að Ari Pétur verði í eldlínunni með samherjum sínum í Gróttu þegar þeir sækja FH heim í Kaplakrika klukkan 19.30 í kvöld í 10. umferð Olísdeildar karla.

Dagskráin: Tekst FH að tylla sér á toppinn?

Staðan í Olísdeildum og næstu leikir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -