Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson eru Evrópudeildarmeistarar í handknattleik karla með MT Melsungen eftir sigur á THW Kiel, 24:23, í úrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg. Eins nærri má geta er um stóran áfanga að ræða hjá þeim félögum sem eiga það einnig sameiginlegt að hafa alist upp hjá Fram. Þeir hafa aldrei unnið svo stóran titil á alþjóðlegum vettvangi. Reynir Þór kom til félagsins fyrir leiktíðina og Arnar Freyr kveður Melsungen í sumar.
Þetta er í fyrsta sinn sem MT Melsungen vinnur eitt af Evrópumótum félagsliða og í raun hefur liðið aldrei náð inn í úrslitaleik áður.
Arnar Freyr skoraði tvö mörk í sigurleiknum í dag en Reynir Þór skoraði ekki. Dainis Kristopans skoraði fjögur mörk og var markahæstur. Lukas Zerbe var markahæstur hjá THW Kiel með fimm mörk.
Melsungen vann Flensburg, 37:30, í undanúrslitaleik í gær. Flensborgarliðið lagði Montpellier, 32:30, í bronsleiknum í dag. Þessi sömu félög mættust í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrir ári.



