- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnór Snær hefur samið við Löwen til tveggja ára

Arnór Snær Óskarsson leikur með Rhein-Neckar Löwen næstu tvö ár. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Þýsku bikarmeistararnir Rhein-Neckar Löwen staðfestu í morgun að samið hafi verið við Valsmanninn Arnór Snær Óskarsson. Samningurinn er til tveggja ára og flytur Arnór Snær til Mannheim í sumar og verður hluti af leikmannahópi liðsins frá og með næsta keppnistímabili.

Arnór Snær er 23 ára gamall örvhent skytta sem er fæddur og nánast uppalinn innan Vals. Hann gerði það svo sannarlega gott með Val á nýliðinni leiktíð og var einnig afar mikilvægu hlutverki tímabilið 2021/2022 þegar Valsliðið vann alla bikara sem í boði voru. Frammistaða Arnórs Snæs með Val í Evrópudeildinni vakti athygli á honum. Þegar Valur lék við Göppingen í lok febrúar heimsótti Arnór Snær bækistöðvar Rhein-Neckar Löwen þar sem frá samkomulaginu var gengið.

Rhein-Neckar Löwen var til árið 2002 við sameiningu TSG Kronau og TSV Baden Östringen. Í fyrstu keppti liðið undir merkjum Kronau-Östringen en tók upp heitið Rhein-Neckar Löwen árið 2007. RNL vann þýska meistaratitilin 2016 og 2017, bikarkeppnina 2018 og 2023 og varð meistari meistaranna 2016, 2017 og 2018. RNL vann Evrópubikarkeppnina, sem nú kallast Evrópudeildin, árið 2013. Þá var Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfari liðsins. Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson voru á meðal leikmanna.

Arnór Snær sagður fara til Þýskalands í sumar – Stiven til Benfica?

Arnór Snær hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og var í fyrsta sinn í A-landsliðshópnum í leikjum við Tékka í undankeppni EM snemma í síðasta mánuði.

Fyrir hjá Rhein-Neckar Löwen er annar fyrrverandi leikmaður Vals, Ýmir Örn Gíslason.

Með samningi sínum við Rhein-Neckar Löwen fetar Arnór Snær í fótspor nokkurra Íslendinga. Auk Ýmis Arnar sem þegar er í herbúðum félagsins hafa m.a. Alexander Petersson, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Róbert Gunnarsson og Stefán Rafn Sigurmannsson leikið með RNL. Einnig þjálfaði Guðmundur Þórður Guðmundsson lið RRNL frá 2010 til 2014.
Til viðbótar lék Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður, með Kronau-Östringen (2003-2005) sem var forveri RNL.

Rhein-Neckar Löwen er í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar með 37 stig þegar sjö umferðir eru eftir. Liðið hefur misst af lestinni í keppni um þýska meistaratitilinn en vann bikarkeppninar fyrir hálfum mánuði eftir magnaðan úrslitaleik við SC Magdeburg.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -