- Auglýsing -
- Auglýsing -

Arnór Þorri er markakóngur Grill 66-deildar karla

Þórsarinn Arnór Þorri Þorsteinsson skoraði 15 mörk í gær. Mynd/Skapti Hallgrímsson, Akureyri.net
- Auglýsing -

Þórsarinn Arnór Þorri Þorsteinsson er markakóngur Grill 66-deildar karla en keppni í deildinni lauk á föstudagskvöld. Arnór Þorri skoraði 120 mörk í 18 leikjum Þórs í deildinni, að jafnaði 6,6 mörk í leik.

Níu mörkum á eftir er Ágúst Ingi Óskarsson sem gekk til liðs við Hauka fyrir keppnistímabilið frá Neista í Færeyjum með millilendingu hjá HK. Ágúst Ingi varð næst markahæstur með 111 mörk.

Símon Michael Guðjónsson vinstri hornamaður HK varð þriðji með 101 mark. Símon Michael og samherjar unnu deildina með yfirburðum. HK fékk 35 af mögulega 36 stigum.

Arnór Þorri, Ágúst Ingi og Símon Michael voru þeir einu sem náðu að rjúfa 100 marka múrinn á tímabilinu.

Vegna þátttöku ungmennaliða nokkurra félaga þá léku sumir leikmenn þeirra liða ekki með í öllum leikjum deildarinnar vegna þess að þeir voru einnig í hlutverkum með aðalliðum félaganna í Olísdeildinni. Meðal þeirra er Reynir Þór Stefánsson úr Fram. Hann skoraði 94 mörk í Grill 66-deildinni í 10 leikjum.

Lokastaðan í Grill 66-deild karla.

Hér fyrir neðan er listi yfir þá leikmenn Grill 66-deildar karla sem skoruðu 60 mörk eða fleiri.

Nafn:Félag:mörk
Arnór Þorri ÞorsteinssonÞór120
Ágúst Ingi ÓskarssonHaukum U111
Símon Michael GuðjónssonHK101
Áki Hlynur AndrasonVal U99
Hans Jörgen ÓlafssonSelfossi U96
Ísak Logi EinarssonVal U95
Reynir Þór StefánssonFram U94
Össur HaraldssonHaukum U94
Breki Hrafn ValdimarssonVal U91
Sæþór AtlasonSelfossi U91
Hjörtur Ingi HalldórssonHK90
Tómas Helgi WehmeierKórdrengjum90
Hafsteinn Óli Berg Ramos RochaHK89
Gunnar Valdimar JohnsenVíkingi87
Kristján GunnþórssonKA U85
Viktor Berg GrétarssonFjölni84
Birkir Snær SteinssonHaukum U83
Eiður Rafn ValssonFram U78
Kostadin PetrovÞór73
Benedikt Marinó HerdísarsonFjölni71
Egidijus MikalonisKórdrengjum71
Ísak Óli EggertssonKA U70
Kristján Ottó HjálmssonHK70
Björgvin Páll RúnarssonFjölni69
Tryggvi Sigurberg TraustasonSelfossi U68
Haraldur Bolli HeimissonKA U65
Óðinn Freyr HeiðmarssonFjölni65
Igor MrsuljaVíkingi60


Markahæstir í Grill 66-deild karla 2021/2022.

Markahæstir í Grill 66-deild karla 2020/2021.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -