Ekki stendur til að kalla inn leikmann í íslenska landsliðshópinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik í stað Ólafs Andrésar Guðmundssonar sem varð að draga sig í út úr hópnum í gær vegna meiðsla. Ólafur Andrés meiddist á æfingu í fyrradag.
Haft er eftir Guðmundur Þórði Guðmundssyni á mbl.is að ekki verði bætt í hópinn heldur þeir 17 leikmenn nýttir sem þegar eru í herbúðum landsliðsins. Heimilt er að tefla fram allt að 16 leikmönnum í hverjum leik. Þar af leiðandi er ennþá borð fyrir báru.
Ljóst er að íslenska liðið á tvo leiki eftir á heimsmeistaramótinu. Hvort þeir verða fleiri skýrist væntanlega ekki fyrr en að lokinni riðlakeppninni á sunnudaginn hvort íslenska landsliðið kemst í átta liða úrslit á HM í fyrsta sinn í 12 ár.
Milliriðill 2 (Gautaborg) 20.janúar: Brasilía – Ungverjaland, kl. 14.30. Grænhöfðaeyjar – Portúgal, kl. 17. Ísland – Svíþjóð, kl. 19.30. 22.janúar: Grænhöfðaeyjar – Ungverjaland, kl. 14.30. Brasilía – Ísland, kl. 17. Svíþjóð – Portúgal, kl. 19.30.