- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bryndís Hulda áfram hjá Stjörnunni

- Auglýsing -

Bryndís Hulda Ómarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til sumarsins 2029. Hún var á lokahófi handknattleiksdeildar Stjörnunnar fyrr í mánuðinum valin efnilegasti leikmaður liðsins.

Bryndís Hulda er 18 ára gömul og leikur í stöðu leikstjórnanda. Hún hefur undanfarin tímabil fengið stöðugt stærra hlutverk hjá meistaraflokki Stjörnunnar.


„Bryndís er uppalin hjá félaginu og hefur tekið stór skref með liðinu undanfarin tímabil. Hlutverk hennar hefur vaxið jafnt og þétt og á nýliðnu tímabili var hún valin efnilegasti leikmaður Stjörnunnar viðurkenning sem endurspeglar metnað hennar, vinnusemi og framfarir.

Við bindum miklar vonir við Bryndísi á komandi árum og hlökkum til að sjá hana áfram skína í bláu treyjunni,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -