Fréttir

- Auglýsing -

Dagskráin: Ekki verður slegið slöku við

Tíunda umferð Olísdeildar karla hefst í kvöld með viðureign Íslandsmeistara Vals og Stjörnunnar í Origohöll Valsmanna við Hlíðarenda. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Valur lagði Hauka í hörkuleik á mánudaginn á Ásvöllum, 34:32. Daginn áður sprungu Stjörnumenn út...

Molakaffi: Parrondo, Elliði Snær, Pandi, Raicevic, Göppingen, Jørgensen, Goluža

Roberto Parrondo hefur skrifað undir samning um áframhaldandi þjálfun þýska 1. deildarliðsins MT Melsungen til ársins 2025. Tveir íslenskir landsliðsmenn leika undir stjórn Parrondo, Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson. Parrondo tók við þjálfun Melsungen fyrir rúmu ári...

Cots leikur um bronsið á Afríkumeistaramótinu

Britney Cots, leikmaður Stjörnunnar, er í leikmannahópi Senegal sem tekur nú þátt í Afríkumeistaramótinu í handknattleik kvenna í Dakar í Senegal. Cots og samherjar hafa þegar tryggt sér farseðilinn á HM í desember á næsta ári en Senegal leikur...
- Auglýsing -

Aðalsteinn og Óðinn fengu stig í Winterthur

Svissneska meistaraliðið Kadetten Schaffhausen, sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari, gerði jafntefli við Pfadi Winterthur á útivelli í kvöld í A-deildinni í Sviss, 32:32. Kadetten var fjórum mörkum undir í hálfleik, 17:13, en lánaðist að snúa við taflinu í síðari hálfleik....

Bjarki Már tók þátt í 90 marka leik í Veszprém

Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handknattleik og samherjar hans í ungverska stórliðinu Veszprém unnu Ferencváros með 10 marka munu, 50:40, í vægast sagt skrautlegum handboltaleik á heimavelli í Veszprém í ungversku 1. deildinni í kvöld. Lokatölurnar eru hreint lygilegar...

Einn í bann en þrír áminntir

Aganefnd HSÍ úrskurðaði í vikunni Grétar Áka Andersen þjálfara Vals í eins leiks bann en hann hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög grófrar ódrengilegrar hegðunar eftir leik HK og Vals í 4. flokki karla á síðasta sunnudaginn. Segir í...
- Auglýsing -

Tíu lið frá EM bíða íslenska landsliðsins í HM-umspili

Eftir að milliriðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik lauk í gærkvöld liggur fyrir hvaða liðum íslenska landsliðið getur dregist á móti í umspili fyrir heimsmeistaramót kvenna sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð á næsta ári. Dregið verður Ljubljana á...

Molakaffi: Viktor, Daníel, Sveinn, Halldór, Arnar, Ágúst, Elvar, Orri

Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik í marki Nantes í gærkvöld þegar liðið vann Créteil, 34:29, á útivelli í 16-liða úrslitum frönsku bikarkeppninnar í handknattleik. Viktor Gísli varði 15 skot, þar af eitt vítakast, og var með 44% hlutfallsmarkvörslu.  Daníel Freyr...

Danir skelltu meisturunum – Frakkar bíða á föstudag

Danir urðu í kvöld fyrstir til þess að leggja heims- og Evrópumeistara Noregs á Evrópumótinu í Slóveníu, 31:29, og tryggja sér þar með efsta sætið í milliriðli eitt á mótinu. Það þýðir að Danir leika gegn Svartfellingum í undanúrslitum...
- Auglýsing -

Víkingar mæta í slaginn í átta liða úrslitum

Víkingur komst í kvöld í átta liða úrslitum bikarkeppni HSÍ kvennaflokki með því að vinna Fjölni/Fylki, 31:27, í íþróttahúsinu í Safamýri. Víkingsliðið var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Forskotið var aðeins eitt mark í hálfleik, 15:14,...

EM kvenna22 – milliriðlakeppni leikjadagskrá, úrslit

Milliriðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik hófst fimmtudaginn 10. nóvember með tveimur leikjum í riðli eitt sem fram fer í Ljubljana. Fyrstu leikir í milliriðli tvö í Skopje fóru fram föstudaginn 11.11. Milliriðlakeppninni lýkur 16. nóvember. Landslið sex þjóða...

Bjarni Ófeigur innsiglaði annað stigið

Bjarni Ófeigur Valdimarsson tryggði IFK Skövde annað stigið í heimsókn liðsins til Alingsås HK í kvöld. Hann jafnaði metin, 26:26, þegar sex sekúndur voru til leiksloka. Skövde situr í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig eftir 11 leiki og...
- Auglýsing -

12 íslenskar stoðsendingar í sigri meistaranna

Meistarar SC Magdeburg héldu sínu striki í þýsku 1. deildinni í kvöld þegar þeir sóttu Stuttgart heim og unnu með fjögurra marka mun, 32:28. Sigurinn færði Magdeburg upp í fjórða sæti deildarinnar. Liðið hefur 17 stig eftir 10 leiki...

Svíar mæta sennilega Hollendingum

Svíar leika um fimmta sætið á EM kvenna á föstudaginn. Mestar líkur eru á að Hollendingar verði andstæðingar Svía eftir stórsigur á Svartfellingum, 42:25, í Skopje í kvöld. Svíar unnu Króata í Ljubljana, 31:27. Króatar hafna þar með í...

Ungverjar sendu Dani í undanúrslit

Danir eru komnir í undanúrslit Evrópumóts kvenna í handknattleik þótt þeir eigi eftir síðasta leik sinn í milliriðlakeppni mótsins í kvöld gegn Noregi. Ungverjar sáu til þess að danska landsliðið tekur sæti í undanúrslitum. Ungverska landsliðið vann slóvenska landsliðið...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -