- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Áfram heldur keppni á Ragnarsmótinu

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Önnur umferð Ragnarsmótsins í handknattleik kvenna fer fram í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Sigurliðin úr fyrstu umferð, sem leikin var á mánudaginn, mæta tapliðunum tveimur. Valur lagði Selfoss í fyrstu umferð, 32:23, og Afturelding hafði betur í viðureign við Stjörnuna, 29:26.


Leikir kvöldsins á Ragnarsmótinu:
Klukkan 18: Valur – Stjarnan.
Klukkan 20: Selfoss – Afturelding.

Aðgangur á leikina er án endurgjalds auk þess sem Selfoss TV verður að vanda með útsendingu frá viðureignunum.

Síðasta umferð mótsins fer fram á morgun, fimmtudag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -