Tveir síðustu leikir 13. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í dag. Víkingar sækja Íslandsmeistara ÍBV heim og Fram fær KA í heimsókn í Úlfarsárdal. Að leikjunum loknum fara liðin í frí frá Íslandsmótinu fram í byrjun febrúar.
Færeyski handknattleiksmaðurinn Dánjal Ragnarsson leikur sinn síðasta leik með ÍBV í dag. Eins og kom fram í upphafi vikunnar verður hann leystur undan samningi að eigin ósk.
Víkingur vann ÍBV, 31:26, í fyrri viðureign liðanna í Olísdeildinni sem fram fór í Safamýri föstudaginn 15. september.
Fram og KA skildu jöfn daginn áður í KA-heimilinu, 34:34.
Aðeins einn leikur verður eftir óleikinn í Olísdeildinni að viðureignunum loknum í dag. Á mánudaginn leika Afturelding og Valur að Varmá. Þeirri viðureign var frestað þegar 11. umferð fór fram vegna þátttöku beggja liða í Evrópubikarkeppninni.
Leikir dagsins
Olísdeild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Víkingur, kl. 15.20.
Úlfarsárdalur: Fram – KA, kl. 16.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Báðir leikir verða í útsendingu á handboltapassanum.