Dagur Sigurðsson, þjálfari króatíska karlalandsliðsins, er einn þeirra sem koma til greina sem arftaki Spánverjans Talant Dujshebaev við þjálfun pólska stórliðsins Industria Kielce. Dujshebaev lét óvænt af störfum í síðustu viku.
Samningur hans við Kielce átti að renna út næsta sumar en lét Dujshebaev þegar af störfum og aðstoðarmaður hans Krzysztof Lijewski tók við stjórnartaumunum út tímabilið. Gangi Lijewski vel næstu vikurnar er hann talinn líklegur til þess að fá starfið til frambúðar.
Franski miðillinn Hand News og umboðsmaðurinn virti Hen Livgot nefna til sögunnar fjögur erlend nöfn sem séu á blaði hjá Kielce fari svo að Lijewski verði ekki ráðinn.
Nafn Dags er eitt þeirra auk þess sem Slóveninn Uros Zorman, Króatinn Ivan Cupic og Þjóðverjinn Jaron Siewert koma til greina.


