- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagur með besta árangurinn – Alfreð þriðji

- Auglýsing -

Í þýskum miðlum er mikið rætt og ritað um ákvörðun þýska handknattleikssambandsins að framlengja samning Alfreðs Gíslasonar, sem hefur þjálfað karlalandsliðið frá árinu 2020 og unnið til tvennra silfurverðlauna; á Ólympíuleikunum 2024 og EM 2026.

Handball World ákvað að rýna í tölurnar og athuga hvar Alfreð stæði samanborið við fyrri þjálfara frá árinu 1992. Þar kemur í ljós að hann er með þriðja besta árangurinn hingað til. Dagur Sigurðsson trónir hins vegar á toppnum.


Dagur vann 48 af þeim 62 leikjum sem hann þjálfaði Þýskaland frá 2014 til 2017 og er þannig með ansi magnað sigurhlutfall, 77,4%. Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar árið 2016 undir stjórn Dags.

Arftaki hans Christian Prokop er með næstbesta árangurinn, 24 sigra í 36 leikjum og 66,7% sigurhlutfall. Skammt undan er svo Alfreð með 74 sigra í 114 leikjum, sem gerir 64,9% sigurhlutfall.

Goðsögnin Heiner Brand kemur svo í fjórða sæti með 247 sigra í 399 leikjum á árunum 1997 til 2011. Sigurhlutfall Brands er 61,9%.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -