Dagur Sverrir Kristjánsson hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Kemur hann frá Vinslövs HK í Svíþjóð.
Dagur Sverrir er 25 ára örvhent skytta sem hefur leikið í Svíþjóð undanfarin þrjú ár. Fyrstu tvö árin lék hann með HF Karlskrona í úrvalsdeildinni og undanfarið ár með Vinslövs í næst efstu deild, Allsvenskan.
Dagur Sverrir er uppalinn hjá ÍR og hafði leikið með liðinu alla tíð þar til hann flutti búferlum til Svíþjóðar sumarið 2023.
„Hann er kraftmikill, skotfastur og sterkur varnarmaður sem mun án efa styrkja hópinn mikið. Það er alltaf sérstök ánægja þegar íslenskir leikmenn snúa heim úr atvinnumennsku og velja að ganga til liðs við Stjörnuna.
Dagur kemur með dýrmæta reynslu og mikinn metnað inn í liðið og væntum við mikils af honum í bláu treyjunni næstu tvö tímabil. Við bjóðum Dag hjartanlega velkominn í Garðabæinn!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.



