Daníel Freyr Andrésson, markvörður FH, kom mikið við sögu á síðustu augnablikum fjórða leiks liðsins gegn Val í úrslitum Olísdeildarinnar í Kaplakrika í gærkvöldi.
Þegar fáar sekúndur voru eftir af síðari framlengingu var staðan 37:36 og Daníel Montoro, leikmaður Vals, kom boltanum í netið eftir að hafa lent í samstuði við Daníel Frey innan vítateigs.
Myndskeið: Dramatíkin í Kaplakrika
Ákváðu Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, dómarar leiksins, að styðjast við myndbandsdómgæslu og í stað þess að dæma mark var vítakast niðurstaðan, sem markvörðurinn reyndi varði frá Arnóri Snæ Óskarssyni og tryggði þannig dramatískan sigur.
„Ég hef aldrei lent í þessari stöðu á ferlinum held ég, það kemur bara löng sending og ég er inni í teig þannig að mér finnst mjög skrítið að ég ætli að fara að bakka eitthvað niður á línu þannig ég reyni bara að fara í boltann með honum.
Ég veit ekki einu sinni reglurnar með þetta svo ég einhvern veginn var að búast við allt frá því að við ættum boltann í að ég væri að fá bara rautt spjald,“ sagði Daníel Freyr í samtali við RÚV eftir leikinn.



